Styttri brautir á sviði handverks- og hönnunar.
Markmið námsins er að veita nemendum innsýn í fatahönnun, sniðtækni og fatasaum. Að loknu námi fá nemendur skírteini um að námi á brautinni sé lokið. Nemendur geta einnig haldið áfram námi á Listnámsbraut – textíl- og fatahönnunarkjörsviði og að loknu námi þar haldið áfram námi til stúdentsprófs.