Markmið námsins er að gera nemendum kleift að öðlast þekkingu og færni til að sinna störfum við hönnun, gerð og viðhald stærri og minni vefja hjá fyrirtækjum og stofnunum sem þurfa að kynna sig og starfsemi sína á vettvangi upplýsingasamfélagsins. Meðalnámstími er þrjú ár að meðtöldu grunnnámi upplýsinga- og fjölmiðlagreina, þ.e. fjórar annir í skóla og 48 vikna starfsþjálfun.