Náminu er ætlað að veita nemendum grunnþekkingu og færni á sviði almennra þjónustustarfa með áherslu á verslunarstörf, auk almennrar menntunar í bóklegum greinum. Einnig að þjálfa verklega færni og hæfni sem nýtist til starfa á atvinnumarkaði. Námið er alls 77 einingar og skipulagt sem fjögurra anna nám, þar af vinnustaðanám 10 vikur.