Náttúrufræðibraut er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda. Brautin býr nemendur undir nám í háskóla í náttúruvísindum, stærðfræði og öðrum greinum sem byggja á góðri undirstöðu í náttúruvísindum. .Nám á náttúrufræðibraut tekur að jafnaði 4 ár og er fjöldi eininga 140 sem skiptast í kjarna (98 ein.), kjörsvið (30 ein.) og frjálst val (12. ein.). Í boði eru nokkrar mismunandi línur á brautinni og má m.a. nefna eðlis- og efnafræði, eðlisfræði, náttúrufræði, líffræði, lífvísindi og tölvur. Brautirnar eru ólíkar eftir skólum og nauðsyn að kynna sér betur framboðið á vefsíðum skólanna.