-
Námsleið: Starfsnám
Starfsnám er mjög fjölbreytt hvað varðar skipulag, umfang og inntak. Námið er oftast verklegt og bóklegt og fer fram í skóla og á vinnustað. Námstími er mislangur, allt frá einni önn upp í fjögur ár. Námið getur leitt til tiltekinna starfsréttinda sem eru lögvernduð, eða veita undirbúning og þjálfun fyrir tiltekin störf án þess að um lögvernduð starfsréttindi sé að ræða. Hér á eftir má lesa lýsingar á starfsnámi, markmiðum þess og lengd námsins. Gagnlegar upplýsingar má finna á vef
menntamálaráðuneytisins og vef
Iðunnar fræðsluseturs.
-
Námsbraut: Heilbrigðis- og félagsgreinar
Námslína: Heilbrigðisritarabraut
Námið býr fólk undir störf heilbrigðisritara við móttöku sjúklinga, skráningu gagna, gjaldkerastörf og almenn skrifstofustörf á heilbrigðisstofnunum eða fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu. Meðalnámstími er um tvö og hálft ár, þar af fjögurra anna nám í skóla og 12 vikna vinnustaðanám.
Upplýsingar skóla um námið
Meginmarkmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem heilbrigðisritarar inna af hendi við móttöku sjúklinga, skráningu gagna, gjaldkerastörf og almenn skrifstofustörf. Meðalnámstími er um tvö og hálft ár, fjögurra anna nám í skóla, samtals 68 einingar, og vinnustaðanám á heilbrigðisstofnunum eða hjá fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu sem metið er til 12 eininga.
Upplýsingar skóla um inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði til náms á heilbrigðisritarabraut eru að nemendur hafi lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla og einnig lokið samræmdum lokaprófum í íslensku og stærðfræði og náð tilskildum lágmarksárangri skv. ákvæðum reglugerðar um innritun nemenda í framhaldsskóla. Ennfremur er miðað við að nemendur hafi náð 18 ára aldri þegar þeir hefja vinnustaðanám á heilbrigðisstofnunum og hjá fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu.
Lengd náms og einingar
Annir: frá 4 til 6
Einingar: 80
Námsgerð í boði:

Dagskóli

Fjarnám

Blandað nám
Tengiliður náms:
Kristrún Sigurðardóttir kennslustjóri
run@fa.is
http://www.fa.is/heilbrigdisskolinn/hjukbraut/